4.6.07

Hann er frekar dauður

H 1995, 856 – Sjóvá-Almennar tryggingar hf. gegn Björk Arngrímsdóttur vegna sín og ófjárráða dóttur sinnar, Soffíu Snædísar Sveinsdóttur, og gagnsök (Öxnadalsheiði)

"Ásamt veðurofsa og hálku verði það rakið til halla bifreiðarinnar og hæðar hennar yfir akbrautinni, hversu banvænn áverkinn varð."

4 athugasemdir:

ÞG sagði...

Dóttir umræddrar Bjarkar sagði mér frá málinu. Það er góð ástæða til að skipta ekki við Sjóvá-Almennar.

Rassabora sagði...

Ég las um þetta og Sjóvá er vissulega hreinn viðbjóður. En það eru önnur tryggingafélög líka. Ef einhver þekkir til tryggingafélags sem kemur heiðarlega fram má endilega hnippa í mig. Ég hata mitt eigið tryggingafélag af öllu hjarta í dag.

Eiríkur Örn Norðdahl sagði...

Þetta minnir á Testimony eftir Charles Reznikoff - ljóðin þar sem hann skrifar upp skrilljón svona dóma - og öðruvísi. Ég held það séu til 6-7 bækur af þeim. Heldur átakanleg skrif. Eða kopípeist.

farfuglinn sagði...

Ég held að Sjóvá sé botninn, eða alla vega nálægt honum. Lögfræðingurinn sem sér um mitt mál (gagnvart tryggingafélagi) segir að TM sé einna skárst viðureignar. Sel það ekki dýrara en ég keypti.